Lekir líkamar, sameiginlegir heimar: Verk úr safni Bunkier Sztuki í Kraká

Lekir líkamar, sameiginlegir heimar: Verk úr safni Bunkier Sztuki í Kraká
Hafnarhús
-
Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús setur upp sýningu á verkum pólskra samtímalistamanna í samstarfi við listasafnið Bunkier Sztuki í Kraká.
Á sýningunni verða verk eingöngu úr safneign Bunkier Sztuki, sem geymir eitt öflugasta safn pólskrar samtímalistar í Evrópu. Sýnd verða ljósmyndaverk, málverk, skúlptúrar og innsetningar eftir þrjátíu listamenn frá Póllandi.
Líkaminn er í forgrunni á sýningunni og voru flest verkin unnin á 21. öldinni, á tímum örra samfélagsbreytinga, tækniframfara og endurnýjaðra hugmynda um líkama, sjálfsmynd og tilveru. Sjónum er beint að líkamanum sem lifandi ferli fremur en fastmótuðu fyrirbæri. Hann mótast af umhverfi, tækni, félagslegum viðmiðum og sögum, og er ávallt í tengslum við aðra líkama, önnur líf og aðra heima.
Sýningin dregur fram fjölbreytileika og kraft pólskrar samtímalistar og setur hana í alþjóðlegt samhengi. Verkin hafa ferðast frá Kraká til Reykjavíkur, þar sem þau eru sýnd í samfélagi sem að hluta hefur mótast af pólskri nærveru. Pólverjar eru stærsti hópur innflytjenda á Íslandi og hafa auðgað íslenska menningu og daglegt líf. Það er því þýðingarmikið að fá að nálgast þessi verk, sem eiga rætur sínar í pólsku lista- og menningarlífi, hér í Reykjavík. Sýningin skapar þannig vettvang fyrir samveru og samtal pólskrar menningar og íslensks samfélags.
Með sýningunni gefst einstakt tækifæri til að kynnast fremstu samtímalistamönnum Póllands og styrkja um leið menningarleg tengsl Íslands og Póllands.
Listamenn sem eiga verk á sýningunni:
Marta Antoniak
Bogusław Bachorczyk
Barbara Bańda
Bogna Burska
Michał Chudzicki
Oskar Dawicki
Iwona Demko
Katarzyna Górna
Bartosz Kokosiński
Karolina Kowalska
Lidia Krawczyk
Wojciech Kubiak
Agata Kus
Marcin Maciejowski
Cecylia Malik
Krzysztof Marchlak
Małgorzata Markiewicz
Joanna Pawlik
Maria Pinińska-bereś
Karol Radziszewski
Józef Robakowski
Jadwiga Sawicka
Janek Simon
Si On
Justyna Smoleń
Łukasz Stokłosa
Jaśmina Wójcik
Michał Zawada
Jakub Julian Ziółkowski
Alicja Żebrowska
Ítarefni
Sýningarstjórar
Agnieszka Sachar, Aldís Snorradóttir.
Kynningarmynd
Marcin Maciejowski, Læknirinn sagði…, 2001, olía / strigi, 97 × 124 sm , Bunkier Sztuki Collection / Lekarz powiedział…, 2001, olej / płótno, 97 × 124 cm
Styrktar- og samstarfsaðilar
Safnasjóður, Myndlistarsjóður, Adam Mickiewicz Institute og Menningar- þjóðminjaráðuneyti Póllands.
