Salaleiga - Hafnarhús

Portið
Portið er glæsilegt og sveigjanlegt rými fyrir stóra sem smáa viðburði og er reglulega leigt út fyrir árshátíðir, brúðkaupsveislur, afmæli, móttökur, fundi, tónleika, myndatökur og fleira.
400 gestir í sætisuppröðun
300 gestir sitjandi við hringborð
250 gestir sitjandi við hringborð með sviði
400 gestir sitjandi við langborð
500 standandi gestir
900 standandi gestir (háð sérstöku leyfi)
Fatahengi Gott aðgengi fyrir fatlaða.
Gólfflötur 500 m². Lofthæð um 12 metrar.
Utan afgreiðsluopnunartíma er hægt að opna fram í anddyri safnsins.
Leigutaki sér um uppsetningu og framkvæmd við viðburði og útvegar viðeigandi tæki og búnað. Borð og stólar fyrir sitjandi veislur eru ekki tiltæk og þarf að leigja sérstaklega.
Myndir frá útleigum

Fjölnotasalurinn
Fjölnotasalurinn er frábær fundar- og fyrirlestrasalur yfir daginn og lifandi viðburðarými á kvöldin. Salurinn er leigður út fyrir viðburði eins og móttökur, fundi, afmæli, tónleika, kvikmyndasýningar og fleira.
150 standandi gestir 80 gestir í sætisuppröðun
Gólfflötur 100 m² Lofthæð 7 metrar
Utan afgreiðsluopnunartíma er hægt að opna fram í anddyri safnsins
Búnaður
Sýningatjald
Skjávarpi
Stólar 90 stk.
Hægt að biðja sérstaklega um:
Pallar 4 stk. 1.25 x 2.00 m hver
Ræðupúlt
Hljóðkerfi til leigu
Sýningar safnsins eru aðgengilegar gestum ef samið er um það fyrirfram og hægt er að óska eftir leiðsögn á íslensku eða öðrum tungumálum.
Fjölnotasalurinn
