Fara beint í efni

Safn­fræðsla fyrir skóla

Skólahópur í Ásmundarsafni

Listasafn Reykjavíkur býður nemendum á öllum skólastigum upp á ókeypis safnfræðslu um allar sýningar í safnhúsunum þremur.

Safnkennarar Listasafns Reykjavíkur taka á móti hópum virka daga kl. 08.30–16.00. Hámarksfjöldi nemenda í hópi eru 25. Heimsókn með safnfræðslu tekur ríflega eina kennslustund en hægt er að aðlaga lengd eftir þörfum hópsins.

Safnkennari hvetur nemendur til að taka þátt í umræðum þar sem hver og einn fær tækifæri til að tjá sig um eigin upplifun og hlusta á aðra. Myndlist er kynnt sem leið til þess að eiga í samskiptum og kanna heiminn í kringum okkur.

Við fögnum öllum skólahópum sem vilja koma í safnið með eða án leiðsagnar safnkennara. Einnig er tekið á móti hópum í leiðsögn um útlistaverk. Við óskum eftir því að allir hópar láti vita af komu sinni með fyrirvara í gegnum bókunarkerfið. Varðandi sérstakar fyrirspurnir má hafa samband við okkur alla virka daga í síma 411 6400 eða í gegnum netfangið hopar.listasafn@reykjavik.is

Skólahópur í Ásmundarsafni
Skólahópur í Ásmundarsafni

Leikskólar

Safnfræðsla fyrir leikskólanema miðast við eldri árganga skólans sem oft eru að koma í fyrsta sinn á safn. Við mælum sérstaklega með heimsókn í Ásmundarsafn sem er áhrifarík bygging með góðu útivistarsvæði í höggmyndagarðinum í kring. Listaverk Ásmundar eru aðgengileg og hafa oft að geyma tilvísanir í hinar ýmsu sögur sem höfða til ungra barna. Verk Kjarvals eru alla jafna aðgengileg á Kjarvalsstöðum og verk Errós í Hafnarhúsinu. Að auki eru ýmsar tímabundnar sýningar í safnhúsunum sem kunna að höfða til leikskólabarna og passa inn í þau verkefni sem verið er að vinna að í leikskólanum.

Börn á Kjarvalsstöðum
Börn á Kjarvalsstöðum
Leikskólanemendur í Perlufesti
Leikskólanemendur í Perlufesti

Grunnskólar

Sýningar Listasafns Reykjavíkur eru spennandi námsvettvangur fyrir grunnskólabörn í skóla og frístund til að læra að njóta myndlistar og tengja daglegu lífi og viðfangsefnum í skólanum.

4. bekkur – Ásmundarsafn
Listaverk Ásmundar Sveinssonar eru oftast en ekki hlaðin frásögn, þau vísa í Íslendingasögur, þjóðsögur og goðafræði, en einnig daglegt líf fyrri tíma. Þá vekja höggmyndagarðurinn og safnbyggingin sjálf, sem var heimili og vinnustofa listamannsins, ekki síður undrun og áhuga nemenda á yngsta stigi grunnskólans.

6. bekkur – Kjarvalsstaðir
Innsýn í ævistarf Jóhannesar S. Kjarvals, eins ástsælasta listamanns þjóðarinnar og leiðsögn um yfirstandandi sýningar. Kjarval var goðsögn í lifanda lifi og tengist list hans menningarlegri viðreisn þjóðarinnar á fyrra hluta 20. aldar órjúfanlegum böndum. Einnig fá nemendur að kynnast byggingunni sem er elsta húsið á Íslandi sem var byggt til þess að hýsa listasafn.

Unglingastig – Hafnarhús
Í Hafnarhúsi er lögð áhersla á sýningar á framsækinni list eftir viðurkennnda innlenda og alþjóðlega samtímalistamenn. Hafnarhúsið eru heimkynni Errósafnsins og þar má alltaf ganga að Við nálgumst samtímalistina í gagnrýninni samræðu og þar sem nemendur eru hvattir til að deila skoðunum sínum og hugmyndum.

Framhaldsskólar

Framhaldsskólahópar eru velkomnir í heimsókn að kostnaðarlausu og safnkennarar mæta þeim á þeirra forsendum í lifandi spjalli um listina og lífið. Viðfangsefni listamanna eru fjölbreytt og oft verða til verk sem kallast á við málefni líðandi stundar. Út frá myndlist er hægt að ræða stjórnmál, umhverfismál, stríð, loftslagsbreytingar, trúmál, kynvitund eða annað tengt samfélagi, daglegu lífi og samtíma. Frítt er inn á almennar sýningar og viðburði í safninu fyrir 18 ára og yngri.

Háskólar

Háskólahópar eru velkomnir í heimsókn með kennara þeim að kostnaðarlausu og safnkennarar mæta þeim í lifandi faglegu spjalli um listina og lífið. Einnig er tilvalið að skipuleggja vísindaferðir nemenda á sýningar safnsins. Stakir námsmenn fá afslátt af aðgöngumiðum og í boði er árskort á góðum kjörum fyrir 28 ára og yngri til þess að sækja allar sýningar og viðburði.

Fræðsluefni

Nína Sæmundsson, Hafmeyjan, ca. 1948

Perlufesti

Boðið er upp á leiðsögn safnkennara um höggmyndagarð kvenna í Hljómskálagarði, Perlufesti. Hér gefst tækifæri til þess að njóta útiveru og hugsa meðal annars um hlutverk listaverka í opinberu rými, ólík form, stílbrigði eða inntak, sögu jafnréttisbaráttu og bregða á leik.
Sjá meira
Appið - Útilistaverk í Reykjavík

Appið – Útilistaverk í Reykjavík

Í appinu finnur þú upplýsingar um öll útilistaverk í Reykjavík. Þar er einnig skemmtilegur leikur í þremur þyngdarstigum. Það er tilvalið til skemmtunar og fróðleiks bæði inni og úti.
Sjá meira
Verkefni fyrir skapandi krakka

Verkefni fyrir skapandi krakka

Hér má finna skemmtileg verkefni sem tengjast sýningum Listasafns Reykjavíkur í gegnum tíðina sem má prenta út og spreyta sig á.
Sjá meira

Verum tengd!

Við hvetjum kennara til að skrá sig á póstlista safnsins og fá vikulegar upplýsingar um dagskrá safnsins og boð á opnanir á sýningum beint í pósthólfið sitt.