Fara beint í efni

Fjöl­skyldur

Fjölskyldur á Kjarvalsstöðum

Í Listasafni Reykjavíkur er tekið vel á móti fjölskyldum með börn á öllum aldri.

Safnið býður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir yngstu gestina þar sem myndlistin er skoðuð í gegnum leik, sköpun og forvitni.

Reglulega er boðið upp á fjölskylduleiðsagnir, listasmiðjur, viðburði og námskeið sem gefa börnum og fullorðnum tækifæri til að skoða saman myndlist í rólegu og skapandi umhverfi. Í öllum safnhúsum má finna sérstök barna og fjölskyldurými þar sem hægt er að staldra við, skapa og njóta samveru.

Kjarvalsstaðir

Í austurenda Kjarvalsstaða er Hvammur, hlýlegt barna- og fjölskyldurými þar sem gestir á öllum aldri geta sest niður og notið samveru. Þar má skoða bækur, teikna og vinna með fjölbreyttan efnivið sem hvetur til forvitni og sköpunargleði.

Hvammur er jafnframt vettvangur fyrir fjölbreytta dagskrá fyrir börn og fjölskyldur. Þar eru reglulega haldnar listasmiðjur, barnanámskeið og fjölskylduviðburðir tengdir sýningum safnsins. Í Hvammi geta börn og fullorðnir upplifað myndlistina saman, rætt það sem fyrir augu ber og prófað sig áfram með eigin hugmyndir. Hægt er að neyta veitinga í Hvammi, bæði eigin veitinga og frá veitingastaðnum á Kjarvalsstöðum, Klambrar Bistro, sem gerir rýmið að notalegum stað til að staldra við og njóta safnheimsóknarinnar.

Hafnarhús

Á neðri hæðinni í Hafnarhúsi er að finna notalegt rými fyrir börn og fjölskyldur. Þar er fjölbreyttur efniviður sem hvetur til sköpunar og leikja og gestum gefst kostur á að vinna með eigin hugmyndir og skapa sín eigin listaverk.

Þar geta gestir á öllum aldri sest niður saman í rólegu umhverfi. Viðfangsefni og efniviður tengjast gjarnan þeim sýningum sem standa yfir í Hafnarhúsi og gefa börnum og fjölskyldum tækifæri til að nálgast samtímalist á skapandi og aðgengilegan hátt. Á fimmtudögum er opið til kl. 22 í Hafnarhúsi og því tilvalið að njóta skapandi samveru fram á kvöld.

Ásmundarsafn

Í Ásmundarsafni er Undraland, skapandi fjölskyldusmiðja innblásin af verkum Ásmundar Sveinssonar.

Á Ásmundarsafni er hægt að finna leyniskúffu, en í henni er að finna alls konar liti, bækur, leir og skapandi efni sem hægt er að vinna í með frjálsri aðferð. Í Ásmundasafni er líka alltaf heitt á könnunni fyrir fullorðna fólkið. 

Fyrir börn og fjölskyldur

Nína Sæmundsson, Hafmeyjan, ca. 1948

Perlufesti

Perlufestin er höggmyndagarður kvenna í Hljómskálagarði. Hér gefst tækifæri til þess að njóta saman útiveru og hugsa meðal annars um hlutverk listaverka í opinberu rými, ólík form, stílbrigði eða inntak, sögu jafnréttisbaráttu og bregða á leik.
Sjá meira
Appið - Útilistaverk í Reykjavík

Appið – Útilistaverk í Reykjavík

Í appinu finnur þú upplýsingar um öll útilistaverk í Reykjavík. Þar er einnig skemmtilegur leikur í þremur þyngdarstigum. Það er tilvalið til skemmtunar og fróðleiks bæði inni og úti.
Sjá meira
Verkefni fyrir skapandi krakka

Verkefni fyrir skapandi krakka

Hér má finna skemmtileg verkefni sem tengjast sýningum Listasafns Reykjavíkur í gegnum tíðina sem má prenta út og spreyta sig á.
Sjá meira
Námskeið á Listasafni Reykjavíkur

Námskeið á Listasafni Reykjavíkur

Á hverju sumri bjóðum við upp á fjölbreytt námskeið fyrir börn þar sem blandast saman leikur, sköpun og útivist!
Sjá meira
Krassa Sig talar um myndlist

Orðasafn um myndlist

Hér eru nokkur myndbönd um orð og hugtök sem eru gjarnan notuð í myndlist. Þau hjálpa til við að lýsa því hvernig listaverk verður til, hvað það er og hvernig það virkar. Hægt er að nota mörg ólík hugtök um eitt og sama listaverkið.
Sjá meira

Húsin

Ásmundarsafn

Ásmundarsafn

Sigtún 105
4116430
Opnunartímar
13:00–17:00
Hafnarhús

Hafnarhús

Tryggvagata 17
4116410
Opnunartímar
10:00-17:00
Fimmtudaga 10:00–22:00
Skrifstofan er opin mán. - fös. 9:00-15:30
Kjarvalsstaðir

Kjarvalsstaðir

Flókagata 24
4116420
Opnunartímar
10:00–17:00